Stórborg kynnir á flottu verði með ÍLS láni ca. 22.5 millj.: Nýleg 3ja herbergja íbúð á 4.hæð í lyftuhúsi með stæði í bílageymslu. Laus strax. Húsið stendur á hafnarbakkanum í Hafnarfirði. Stigahús í miðri blokk en gott útsýni til sjávar úr herbergjum. Einungis tvær íbúðir á hæð. Húsið er klætt að utan með báruáli.
Nánari lýsing: Komið er inn á flísalagt hol. Eldhúsið er flísalagt og með góðri viðarinnréttingu ( Hnota) og eldunareyju og borði með steinplötu. Góð tæki. Eldhúsið er opið inn á stofuna sem er flísalögð og með góðum vestursvölum út af. Hjónaherbergið er flísalagt og með skápum og banraherbergið er flísalagt. Baðherbergið er flísalagt og með stórum gler sturtuklefa og góðri innréttingu. Þvottahús er flísalagt. Í kjallara er sérgeymsla og stæði í bílageymslu. ATH áhvílandi ca. 22.5 millj lán við ÍLS. Laus strax. Stefán sýnir strax s: 895-2049. stefan@storborg.is