Fasteignasalan Stórborg kynnir 4ra herbergja efri sérhæð við Kársnesbraut í Kópavogi. Sérinngangur.
Eignin telur, stofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, hol og forstofu. Nánari lýsing : Komið er inn í forstofu þaðan sem gengt er upp í íbúðina. Stofan er björt og parketlögð með útgengi út á suðursvalir. Eldhúsið er flísalagt með eikarinnréttingu, hol er parketlagt. Svefnherbergin þrjú eru nokkuð rúmgóð, tvö þeirra parketlögð og eitt flísalagt. Flísalagt baðherbergi, vegghengt salerni og sturta. EIGNIN ER LAUS NÚ ÞEGAR, SÖLUMENN SÝNA. EKKERT ÁHVÍLANDI.
Nánari upplýsingar á skrifstofu sími 534-8300, storborg@storborg.is Stefán Hrafn: 895-2049