Upplýsingar fyrir seljendur

.

                                      GJALDSKRÁ- FASTEIGNASÖLUNNAR- STÓRBORG

1.      Söluþóknun vegna fyrirtækja nemur 3,5% auk virðisaukaskatts af heildarverðmæti samnings, þ.m.t. lager og lausafjármunir auk fasteigna, þ.e. heildarverð félags, fasteigna og eða vaxtarberandi veðskulda. Við bætist fast gjald fyrir auglýsingarkostnað kr. 15.000 auk virðisaukaskatts. Aðeins er greitt ef sala fer fram. Ef upphæð samnings er undir 3.000.000 er lágmarksþóknun kr. 200.000 auk virðisaukaskatts.

2.      Söluþóknun vegna húsnæðis í einkasölu reiknast 1,95% auk virðisaukaskatts. Lágmarksþóknun er kr. 150.000 auk virðisaukaskatts. Söluþóknun vegna húsnæðis í almennri sölu er 2,5% auk vsk.

3.      Söluþóknun vegna rekstrarleigu nemur tveggja mánaða leigu. Lágmarksþóknun er kr. 150.000 auk virðisaukaskatts. Ef kaupréttarákvæði kemur til framkvæmda, reiknast 2,5% auk virðisaukaskatts af söluverði við kaupsamning.

4.      Þóknun vegna húsaleigusamnings nemur einnar mánaðar leigu að lágmarki en þó ekki undir kr. 150.000 auk virðisaukaskatts. Sé um lengri samning en til 5 ára reiknast eins mánaðar leiga auk virðisaukaskatts á hver fimm ár umfram fyrstu fimm árin.

5.      Söluþóknun vegna annara samninga nemur 3% auk virðisaukaskatts af verðmæti samnings. Lágmarksþóknun er kr. 300.000 auk virðisaukaskatts.

6.      Söluþóknun vegna samninga þar sem kaupendur og seljendur hafa þegar komið sér saman nemur 1.0 % auk virðisaukaskatts af verðmæti samnings, þ.e. samkomulag hverju sinni þó er lágmarksþóknun er kr. 150.000 auk virðisaukaskatts.

7.      Kaupendaþóknun, ( finders fee) þ.e. ef aðili kemur með óljósar hugmyndir um hvað hann vill og kaupir svo fyrirtæki sem Stórborg hefur fundið fyrir hann reiknast 2.0% auk virðisaukaskatts af kaupverði sem gjald á kaupandann. Það sama á við ef kaupandi kemur með ákveðið fyrirtæki í huga

8.      Makaskipti,  fyrir fasteignir sem notaðar eru sem greiðsla upp í aðra eign, fyrirtæki, félag eða fasteign skal greiða að lágmarki 1,0% auk vsk.

9.      Ef bifreiðar eru notaðir sem greiðsla í kaupsamningi hjá Stórborg fasteignasölu skal greiða 3,0% þóknun af verðmæti bifreiðarinnar.

Ofangreind gjaldskrá gildir frá 1.janúar 2009 nema um annað sé sérstaklega samið.

Gagnlegir tenglar
Fasteignavefurinn Habil.is
Habil er elsti fasteignavefur Evrópu og er leiðandi á því sviði.
Fasteignamat ríkisins
Fasteignamat ríkisins hefur það hlutverk að annast skráningu og mat fasteigna, varðveita upplýsingarnar í viðeigandi kerfum og veita upplýsingar úr þeim. Þetta hlutverk rækir Fasteignamatið með því að halda Landskrá fasteigna, annast fasteignamat, brunabótamat og sinna rannsóknum á fasteignamarkaðnum.
Félag fasteignasala
Félag fasteignasala var stofnað þann 5. júlí 1983 og er félag allra löggiltra fasteignasala á Íslandi en engum er heimilt að kalla sig fasteignasali eða löggiltur fasteignasali nema hann hafi lokið námi sem fasteignasali og hafi nægilega reynslu.
Hagstofan
Hagstofa Íslands tók til starfa árið 1914. Hún starfar samkvæmt stofnlögum sínum frá 1913, lögum, reglugerð og auglýsingu um Stjórnarráð Íslands, lögum um þjóðskrá og almannaskráningu og ýmsum öðrum lögum.
Brunamálastofnun
Markmið Brunamálastofnunar og slökkviliðanna í landinu er að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir með því að tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit og viðbúnað við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.
Fasteignavefur Morgunblaðsins
Fasteignavefur MBL er mest sótti fasteignavefur landsins.
Byggingarfulltrúinn í Rvk.
Hlutverk skipulags- og byggingarsviðs er að veita borgarbúum, borgarfulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum, byggingarverktökum og öðrum þeim sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um skipulags- og byggingarmál. Sviðið er jafnframt stefnumótandi í skipulags- og byggingarmálum borgarinnar í samvinnu við skipulagsráð.
Frjálsi fjárfestingarbankinn
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. (áður Samvinnusjóður Íslands hf.) var stofnaður þann 18. nóvember árið 1982 á 100 ára afmæli Samvinnuhreyfingarinnar. Tilgangur félagsins við stofnun var að efla íslenskt efnahagslíf með því að beita sér fyrir þáttöku samvinnuhreyfingarinnar í atvinnulífi landsmanna, einkum í nýjum greinum. Við stofnun varð því félagið fyrsta framtaksfyrirtæki ?Venture capital? á Íslandi en tilgangur félagsins hefur breyst í áranna rás.
Íbúðalánasjóður
Íbúðalánasjóður er sjálfstæð ríkisstofnun sem veitir einstaklingum, sveitarfélögum, félögum og félagasamtökum húsnæðislán til íbúðarkaupa og byggingarframkvæmda.

Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða fjármálafyrirtæki sem veitir víðtæka þjónustu á sviði bankaviðskipta og vátrygginga. Á meðal viðskiptavina okkar eru tugþúsundir einstaklinga og heimila, félög, fagfjárfestar og fyrirtæki innanlands og erlendis.
KB banki
KB banki er norrænn banki og stefnir að því að vera í hópi leiðandi fjárfestingarbanka á Norðurlöndum. KB banki býður fyrirtækjum, fagfjárfestum og einstaklingum fjárfestingarbankaþjónustu og alhliða fjármálaþjónustu.
Landsbankinn
Landsbanki Íslands hf. er eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins með eigið fé sem nemur 38 milljörðum króna og heildareignir að fjárhæð 730 milljarðar króna í lok fjórða ársfjórðungs 2004. Bankinn veitir alhliða þjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana og er útibúanetið víðtækast meðal fjármálafyrirtækja.
Netbankinn
Netbankinn er fyrsti og eini bankinn á Íslandi sem er eingöngu starfræktur á Netinu. Formlega nafn Netbankans er nb.is - sparisjóður hf. en í daglegu tali og á auglýsingamarkaði er talað um Netbankann.
Sjóvá Almennar hf.
Sjóvá var stofnað árið 1989 á grunni tveggja gamalgróinna vátryggingafélaga, Sjóvátryggingarfélags Íslands hf. og Almennra Trygginga hf.
Tryggingarmiðstöðin
Tryggingamiðstöðin er framsækið og metnaðarfullt fyrirtæki sem býður starfsfólki sínu góða vinnuaðstöðu. Hjá TM starfar rúmlega 100 manna samhentur hópur sem hefur það markmið að veita góða þjónustu á mannlegum nótum þar sem þörfum hvers og eins er mætt af sanngirni.
Vátryggingarfélag Íslands
Vátryggingafélag Íslands hf. var formlega stofnað 5. febrúar 1989 og tók til starfa síðar á því ári. VÍS býður fjölbreytt úrval trygginga fyrir einstaklinga og fjölskyldur, fyrirtæki og stofnanir.