Kaupsamningar um fasteignir samkvæmt skrám Fasteignaskrár Íslands hafa ekki verið færri frá árinu 1980.
Sé litið til höfuðborgarsvæðisins stefnir heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga í rúmlega 70 milljarða króna, kaupsamningar verði tæplega 2.100 og meðalupphæð kaupsamnings verði um 34,5 milljónir króna. Heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2008 var rúmlega 113 milljarðar króna og voru kaupsamningar rúmlega 3.500. Meðalupphæð samninga árið 2007 var um 32 milljónir króna. Síðan árið 1979 hafa ekki verið skráðir færri kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu.
Smelltu hér ef þú villt skoða tímaraðir með veltu og fjölda kaupsamninga. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið "Save target/link as" og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.